- 3. júlí, 2019
- Rafbílar
- Posted by smartbilar
- Slökkt á athugasemdum við Ísland hentar vel fyrir rafbílavæðingu
Rannsókn Orku náttúrunnar á kolefnisfótspori rafbíla við íslenskar aðstæður er komin út. Á Íslandi höfum við hreina raforku en hátt olíuverð auk þess sem íbúar eru nógu fáir til að hægt sé að mæta eftirspurn. Landið hentar því afar vel fyrir rafbílavæðingu. Rannsóknin og niðurstaða skýrslunnar var tilkynnt í dag en hún getur varpað ljósi á margt það sem fólk er að velta fyrir sér í þessum efnum.
Skýrslan var unnin af starfsfólki Orku náttúrunnar, þeim Kevin Dillman umhverfisverkfræðingi og Dagnýju Hauksdóttur, doktor í iðnaðarverkfræði sem einnig er menntuð í lífsferilsgreiningu og mati á umhverfisáhrifum.
Í skýrslunni kemur fram að rafbílar losa fjórfalt minna af gróðurhúsalofttegundum, á líftíma sínum, en bensín- og dísilbílar.
Helstu atriði skýrslunnar:
- Heildarlosun rafbíls, frá framleiðslu að 220 þúsund km. akstri við íslenskar aðstæður, er 4-4,5 sinnum minni en heildarlosun bíla [...]
- 11. júní, 2019
- Rafbílar
- Posted by smartbilar
- Slökkt á athugasemdum við Ísland og áhrif rafbíla á loftslagsbreytingar
ON hefur sett sér það markmið að vera leiðandi í umhverfisvænni orkuframleiðslu og styðja við orkuskiptin í samgöngum. Liður í þeirri viðleitni var gerð skýrslu um mat á þeim áhrifum sem rafbílar hafa á umhverfið.
Miðvikudaginn 3. júlí kl. 8:30 – 9:45 verður morgunfundur þar sem við kynnum niðurstöður tímamótaskýrslu sem svarar helstu spurningum um orkuskiptin sem gætu varpað ljósi á margt það sem fólk er að velta fyrir sér í þessum efnum.
Skýrslan var unnin af starfsfólki okkar, þeim Kevin Dillman umhverfisverkfræðingi og Dagnýju Hauksdóttur, doktor í iðnaðarverkfræði sem einnig er menntuð í lífsferilsgreiningu og mati á umhverfisáhrifum. Eftir fundinn verður skýrslan gerð opinber.
Heimildir